Nikótín
Nikótín - er það eitthvað hættulegt
Aldur
Fræðslan hentar nemendum í 7.–10. bekk grunnskóla, unglingum í félagsmiðstöðvum og nemendum í framhaldsskólum. Sérútgáfa er einnig í boði fyrir fullorðna sem vilja fræðast um nikótín og áhrif þess á heilsu. Efnið er aðlagað hverjum aldurshópi þannig að það sé bæði aðgengilegt og áhugavert fyrir alla þátttakendur.
Tímalengd
Fræðslan tekur um 40 mínútur.
Oft hægt að samþætta við aðrar fræðslur eins og til dæmis fræðslu um orkudrykki og/eða áfengi.
Markmið
Markmið fræðslunnar er að upplýsa ungmenni og fullorðna um skaðsemi nikótíns, ávanabindingu og langtímaáhrif á líkamlega og andlega heilsu. Jafnframt er lögð áhersla á að efla sjálfsmynd þátttakenda og styrkja hæfni þeirra til að taka upplýstar ákvarðanir í eigin lífi.
Fræðsluform
Fræðslan fer fram með glærukynningu en er jafnframt gagnvirk og hvetjandi. Áhersla er lögð á þátttöku ungmenna í formi umræðna og spurninga. Þannig fá þau tækifæri til að deila eigin reynslu og skoðunum, sem gerir fræðsluna lifandi og tengda þeirra raunveruleika.
Fræðarar
Fræðslan er unnin og flutt af hjúkrunarfræðingum sem hafa þekkingu á heilsu, samskiptum og velferð ungmenna.
Fræðsluefni
Efnið er byggt á nýjustu og gagnreyndu heimildum og rannsóknum, ásamt reynslu fræðara úr starfi.
Umfjöllunarefni geta meðal annars verið:
- Hvað er nikótín og hvernig hefur það áhrif á líkamann.
- Ávanabinding og langtímaáhrif nikótíns á heilsu.
- Áhrif nikótíns á svefn, einbeitingu og líðan.
- Ráðleggingar og aðferðir til að hætta eða draga úr nikótínnotkun (fyrir eldri nemendur)
- Tengsl við aðra áhættuhegðun eins og áfengis- og orkudrykkjanotkun.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar
Fáðu tilboð í fræðslu fyrir þinn skóla
Skólafræðsla
Þú hefur óskað eftir tilboði frekari upplýsingum um fræðslu.
Við munum svara þér eins fljótt og við getum.
Takk fyrir áhugann og við hlökkum til tilvonandi samstarfs!
Úps! Upp hefur komið villa, vinsamlegast reynið aftur.