Skyndihjálp á vinnustaðnum

Stefanía Guðmundsdóttir • January 28, 2026

Share this article


Þegar sekúndur skipta máli - skyndihjálp á vinnustaðnum

Augnablik sem enginn gleymir.

Þegar eitthvað alvarlegt gerist og flest okkar frjósa um stund.

Sumir hafa upplifað það á eigin skinni, og þau augnablik lifa með manni.

Þetta er ástæðan fyrir því að skyndihjálp á vinnustaðnum er svo mikilvæg.
Ekki sem lúxus eða “gott að hafa”, heldur sem raunveruleg trygging fyrir öryggi og mannlegri ábyrgð.

Endurmenntun og kennsla í skyndihjálp er lítil fjárfesting í tíma og orku, en hún gefur starfsfólki þá vissu að það geti brugðist við þegar raunverulega á reynir.

Og það er ekki bara öryggismál – það er líka traustsmál.

Starfsfólk man hvort fyrirtækið tók sér tíma til að undirbúa þau.


Fyrirtæki sem sýna þessa ábyrgð skapa ekki bara öruggari vinnustað þau byggja upp ímynd sem vinnustaður sem hugsar um fólkið sitt.

Þetta er á endanum spurning um menningu:
Hvort starfsfólk upplifir að það sé ekki bara hluti af teymi, heldur að það sé eitthvað sem grípur það ef eitthvað óvænt gerist.


Heilsulausnir býður upp á skyndihjálparkennslu sem er veitt af reyndum paramedic með viðurkennd kennararéttindi frá Rauða Krossi Íslands.


Við aðstoðum fyrirtæki og stofnanir við að efla öryggi á vinnustað með fræðslu, námskeiðum og endurmenntun í skyndihjálp.


Boðið er upp á bæði styttri og lengri námskeið, allt eftir þörfum vinnustaðarins.


Að lokinni kennslu fá þátttakendur skírteini frá Rauða Krossi Íslands.





Recent Posts

Woman standing at a fork in a road, hand on head; sign pointing left and right; outdoor setting.
September 23, 2025
Fræðslan veldu hefur hlotið jákvæð viðbrögð
Man lighting a cigar with a lighter, close-up of hands and face.
September 23, 2025
Heilsulausnir býður upp á nikótínráðgjöf fyrir einstaklinga.
Man in a tanning booth, turning on lights; wearing swim trunks.
September 23, 2025
Hættan er ljós
Person holding a black vape, exhaling a large cloud of white vapor.
September 23, 2025
hvað er nikótín og hætta þess