Þjónusta Heilsulausna
Haustið framundan- Heilsuvika?

Haustið markar ákveðin tímamót á mörgum vinnustöðum. Sumarið er að baki, starfsfólk snýr aftur úr fríum og verkefnin fara aftur á fullt. Þetta er góður tími til að huga að skipulagningu vetrarins og ekki síst að því hvernig við ætlum að hlúa að heilsu og vellíðan starfsfólks.
Oft er mikið að gera þegar haustið fer af stað og verkefni tengd heilsueflingu eiga auðvelt með að færast aftar á forgangslistann. Þess vegna getur verið gott að setja strax inn fasta punkta í dagatalið sem snúa að heilsu og vellíðan starfsfólks.Það gefur vinnustaðnum eitthvað til að stefna að og starfsfólkinu eitthvað til að hlakka til.
Hvernig væri að halda Heilsuviku?
Heilsuvika er skemmtileg leið til að setja heilsu og vellíðan í forgrunn.
Hún þarf hvorki að vera flókin né eins hjá öllum fyrirtækjum heldur er hægt að sníða hana að starfsfólkinu, vinnuumhverfinu og þörfum hvers vinnustaðar.
Þegar vinnustaður tekur frá tíma til að huga að heilsu starfsfólks sendir það líka mikilvæg skilaboð: Okkur er annt um fólkið okkar.
Að upplifa að vinnustaðurinn hugsi um heilsu manns og líðan getur stuðlað að auknu öryggi, vellíðan og starfsánægju.
Stundum getur það eitt að fá tíma og óskipta athygli til að ræða eigin heilsu skipt miklu máli.
Heilsufarsmælingar á vinnustað
Heilsulausnir bjóða fyrirtækjum upp á heilsufarsmælingar þar sem starfsfólk fær tækifæri til að staldra aðeins við og taka stöðuna á eigin heilsu.
Meðal þess sem hægt er að mæla er:
Blóðþrýstingur
Blóðsykur
Blóðfita
Hjartarit
En fyrir okkur snúast heilsufarsmælingar ekki eingöngu um tölurnar.
Við viljum líka gefa hverjum einstaklingi tíma og óskipta athygli.
Hvernig hefur þú það? Hvernig sefur þú? Er eitthvað sem þú hefur áhyggjur af eða vilt ræða?
Í kjölfarið veitum við einstaklingsmiðaða ráðgjöf út frá niðurstöðum mælinga, samtalinu og þörfum hvers og eins.
Hjúkrunarfræðingar Heilsulausna búa yfir mikilli reynslu af ráðgjöf og leggja áherslu á faglega og persónulega nálgun.
Slíkt samtal getur verið dýrmætt. Það getur aukið meðvitund fólks um eigin heilsu, hvatt til jákvæðra breytinga og haft góð áhrif á líðan.
Sértækari skoðanir eftir vinnuumhverfi
Þarfir vinnustaða eru mismunandi og því bjóðum við einnig upp á sértækari skoðanir og mælingar þegar þess er þörf.
Sem dæmi má nefna:
Heyrnarmælingar fyrir starfsfólk sem vinnur í hávaða, sjónpróf og 12-leiðslu hjartarit.
Trúnaðarlæknisþjónusta fyrir fyrirtæki
Heilsulausnir bjóða einnig upp á trúnaðarlæknisþjónustu.
Læknir Heilsulausna veitir fyrirtækjum faglega ráðgjöf varðandi málefni sem falla undir trúnaðarlæknisþjónustu og hægt er að sníða þjónustuna að þörfum hvers fyrirtækis.
Haustið er kjörinn tími til að ákveða hvað þið viljið gera í vetur.
Það gæti verið Heilsuvika, heilsufarsmælingar, fræðsla eða reglulegir heilsutengdir viðburðir yfir árið.
Það sem skiptir máli er að byrja og sýna starfsfólkinu í verki að heilsa þess og vellíðan skipti máli.
Viltu vita hvað gæti hentað þínum vinnustað?
Sendu okkur línu hjá Heilsulausnum. Við förum yfir þarfir fyrirtækisins með þér og finnum lausn sem hentar ykkar starfsfólki og vinnuumhverfi.
Recent Posts




